|
|
Fréttir
From 22. september the news are in Icelandic because a result from my research were that visitor of my homepage are 95% have icelandic as native language. If you have something against this decisions please e-mail me
| Föstudagur, 06 Feb 2004 17:37 | Sumarblíða | Það má eiginlega segja að það sé sumarveður hérna á Íslenskan mælikvarða. Það er eitthvað svo mikið vor í lofti þó svo að það sé talsvert í vorið ennþá. Hið besta mál og gerir anda manns aðeins léttari. Annars var ég að lesa um kúnna Ámu í mogganum í dag (Moggi reyndar frá 1. febrúar) og afkastasemi hennar í mjólkurframleiðslunni, 45 kg af mjólk á dag er vel af sér vikið. Fréttin sjálf var svo sem ekki það sem ég tók eftir, heldur myndin af kúnni og stúlku en þar var einungis getið um nafn kúnnar en hvergi getið hvað stúlkan hét. Ég held að þetta gerist bara í íslenskum blöðum, jafnvel í Indlandi, þar sem kýrin er heilög, efast ég um að sérstaklega sé getið um nafn kúnnar en ekki manneskjunnar á myndinni. Það er greinilegt að Mogginn veit hvað lesendur vilja, ekki alltaf þetta eilífa suð um styrjaldir og vopnuð átök, peningarsukk, óeðlilega einokun, spillta stjórnmálarmenn eða skatta og peningamál. Nei, duglegar beljur er málið.
| | Þriðjudagur, 20 Jan 2004 22:44 | Hýslar | Jæja, fyrstu dagarnir hérna í Þýskalandi hafa mest megnis farið í svefn. Heilsan hefur þó farið ört batnandi og nú er ég t.d. bara með smá hellu í hægra eyranu og hósta bara af og til yfir kvefinu. Heilda mín var orðin svo góð í kvöld að ég ákvað að skoða að eins heima síðuna mína og setja t.d. athugarsemdakerfi á það vegna fjölda áskoranna, fólk virðist vera æst í að tjá sig um mín skrif - ég á reyndar eftir að sjá það. Þær nauðsynlegu breytingar sem þurfti að gera til að athugasemdakerfi myndi falla að fréttakerfi mínu og heimasíðu er búið að gera allar en ég stend í sömu sporum og áður: það er engin leið að breyta réttundunum á skránum og það þýðir að ekki er hægt að "keyra" sumar skrár því þeir hafa ekki "keyrslu" réttindi. Þeir tóku af mér þann sjálfsagða möguleika að breyta réttindum skráa þegar þeir færðu heimasíðuna mína á nýjan hýsil (host). Ég er því búinn að senda þeim kvörtun og vona að þeir geri eitthvað í málinu annars þarf ég líklegast að leita að nýjum hýsli. Annars verð ég að láta undrun mína í ljós yfir fréttaskrifum Jóns Snæ um rok hérna, það er greinilegt að viðkoma hans á Íslandi var heldur stutt ef hann er búinn að gleyma því hvernig rok er þar, rokið hér sem ég hef verið var við myndi nú kallast gola á Fróni. Það er greinilegt að menn eru fljótir að venjast.
| | Sunnudagur, 18 Jan 2004 22:13 | Íslandsfrí | Jæja, það eru liðnar fjórar vikur síðan að ég skrifaði síðast. Ég fór yfir jólin í heimsókn til Íslands og naut jólanna með foreldrum og systir og er búinn að hafa það afskaplega gott þessa fjórar vikur sem ég var á Íslandi og tókst að hitta eitthvað af mínum vinum meðan ég var þar. Ég eyddi þó of mikið af tímanum í tannlæknastólnum að mínu mati og ég veit eiginlega ekki hvað var að. Annars þá hafði ég loksins tækifæri til þess að hitta systur mína og kærasta hennar og taka út nýju íbúðina sem að þau voru að kaupa sér og búinn að geta heilmikið fyrir hana. Ég fór svo með Valdísi til Þýskalands núna í dag og tók verðin óvenju stuttan tíma, 2 og hálfa klukkustund. Ég krækti mér í eitthvað kvef rétt áður en ég fór frá Íslandi (Jói, gruna þig sterklega en kannski að þetta hafi komið óbeint frá Sævari þannig að núna er ég illa kvefaður og ennþá með hellu eftir flugið. Það er nú þannig að manni finnst maður aldrei að heimsóknin á Íslandi sé nógu löng og maður komi aldrei öllu í verk sem maður hafði hugsað (hnerri hnerri) sér að gera áður en maður snéri sér síðan aftur að skólanum. Svona er það. Annars læt fylgja mynd með af gervihnattamóttakaranum sem ég hjálpaði pabba að setja upp. Einhverjar fleiri myndir frá dvölinni verða settar á heima síðuna á næstu dögum.
| | Laugardagur, 20 Des 2003 11:45 | Í röð | Eitt af því sem að maður verður mjög var við hérna í Þýskalandi er að maður er alltaf að bíða. Maður stendur í röð á kassa og bíður eða á rauðu ljósi og bíður o.s.fr. Ég ætla að fullyrða að ég eyði líklegast einum fimmta af vökutíma mínum í að bið einhverstaðar, í Mensunni, eftir að tölvan keyri sig upp, á rauðu ljósi, eftir sporvagni o.s.fr. Allt bið sem ég hef ósköp lítið með að gera heldur stafar af þjóðfélagsskipulagi og tilhögun hina ýmsu kerfa. Hér í Þýskalandi gerir maður meira af því að bíða en heima, að mínu mati, þó t.d. bið eftir strætó sé meiri heima en hérna eftir sporvagni. Gott dæmi er að þegar maður er að versla í búð þá þarf maður nær undantekningarlaust að bíða þegar maður kemur á kassa. Hér er eins og þjóðverjar leitist við að hafa það marga á kassa að það skapist örugglega einhver röð. En þar sem Þjóðverjar þurfa að bíða svona mikið í röð, eru þeir þá ekki þolinmóðari en við Íslendingar? Eiginlega ekki. Þjóðverjar eru afskaplega óþolinmótt fólk og eiginlega pirraðri en Íslendingar þegar þeir þurfa að bíða að óþörfu og hér er lykilorðið að óþörfu. Ef að Þjóðverjar þurfa óhjákvæmilega að bíða þá bíða þeir venjulega án þess að tauta og raula. Ef hins vegar óþarfa bið skapast, t.d. einhver sem er of lengi að koma sér úr sporunum eða slíkt þá verða þeir rosalega pirraðir. Hafi maður áhuga á því að koma Þjóðverja uppá hæstu nóturnar þá er það mjög auðvelt og mjög auðvelt að skapa rifrildi ef þannig liggur á manni. Við Íslendingar virðumst hins vegar ekki geta beðið þó við óhjákvæmilega þurfum þess en erum alveg tilbúnir að bíða þegar við þurfum þess ekki. Þar sem Þjóðverjar eru mjög þjálfaðir að bíða í röð þá má líka sjá allskonar brögð hjá þeim til þess að komast framhjá því að bíða sem að þekkist ekki á Íslandi. Í gær var ég t.d. að bíða í röð á pósthúsinu og þar var ekkert svo löng röð en ein kellingin reyndi a.m.k. tvisvar sinnum að stytta sér leið að afgreiðsluborðinu með því að standa til hliðar við eitthvert af borðinu og láta eins og hún vissi ekki hvernig kerfið virkaði (mjög algengt trix hjá Þjóðverjum) en í bæði skiptin var henni vísað af starfsmönnum að fara aftast í röðina og alltaf lét hún eins og hún væri að heyra þetta í fyrsta skipti.
|
|
Picture of the day:
Comic of the week:
The weather in Karlsruhe:
Current reading:
Quote of the day:
-->
|