|
|
Fréttir
| Sunnudagur, 03 Maí 2009 17:40 | Í byrjun maí | | Hef ekki verið duglegur að skrifa og hef að sjálfsögðu helling af afsökunum fyrir því sem enginn hefur svo sem áhuga á að lesa. Í mjög sólríkum apríl mánuði þá náði ég að næla mér í hálsbólgu og hef verið að berjast við hana síðustu vikuna. Mætti þó í vinnuna þar sem að það var skiladagur núna síðasta fimmtudag og vildi sem fyrst koma þeim verkefnum frá mér svo að ég geti snúið mér að öðrum, (jebb, ég er hrútur og hef afskaplega gaman af að byrja á verkefnum en þarf að beita mig aga til að klára þau). Annars þá voru kafla skipti í myndasöguskólanum núna í apríl þar sem að við kláruðum þann hluta sem er kallaður Cartoon & Comic basics og hófum Cartoon & Comic advance. Hér er annars mynd frá myndasöguskólanum þar sem að við erum að greina og ræða teiknimyndasögur (á myndinni frá vinstri: Davor Bakara, kennari okkar, Oliver Bartl og ég). Við fengum að vita hvernig hvaða skilyrði lokaverkefnið okkar á að uppfylla og erum við byrjuð að vinna að þvi. Það á að vera 6 síðna myndasaga. Pabbi kom í heimsókn yfir páskanna og fékk að mestu mjög gott veður hérna og ég komst að því að einstök taska má ekki vera meira en 31 kg, ef hún fer yfir það þarf að dreyfa innihaldinu á fleiri töskur. |
| | Mánudagur, 23 Mar 2009 21:35 | Vor í lofti? | Náttúran virðist vera farin að taka við sér eins og að meðfylgjandi mynd sýnir en fyrstu blómin eru farin að láta sjá sig. Myndin er tekin í Nymphengarden með húsið í bakgrunni þar sem að ég vinn. Myndin er reyndar tekin fyrir meira en viku og blómin eru farin að opna sig. Það hefur aðeins hlýnað en samkvæmt veðurspánni þá á að fara að fara að kólna aftur næstu daga, því miður fyrir aumingja blómin. Var að lesa grein í Spiegel um strákinn sem að gekk af göflunum og skaut 15 manneskjur til bana og særði fleiri og tók sig á endanum af lífi. Þetta gerðist í rólegum og friðsælum smábæ, Winnenden, sem er 20 km norðan við Stuttgart en til Stuttgart fer ég næstum aðra hverja viku núna í skólann. Strákurinn var 17 ára og óð inní framhaldsskóla og skaut fólk eins og hann væri þjálfaður í þessu. Þetta fær mann til að hugsa því það er ekki eins og að byssur liggi á glámbekk hérna í Þýskalandi, það þarf leyfi til þess að vera með byssur og skotvopn, þetta er ekki eins og í sumum fylkjum í Bandaríkjunum. Þetta var heldur ekki stórborg, þetta var í smábær. Flest fórnalömbin voru stúlkur. Og síðustu 8 árin er þetta í fjórða skipti sem að svona nokkuð gerist í Þýskalandi. Það sem að stóðu fyrir þessu spiluðu mikið tölvuleiki, horfðu mikið á kvikmyndir, voru tiltölulega útundan og áttu auðvelt með að komast í skotvopn. Tim Kretschmer, sem að stóð að þessu í þetta skiptið, var þó mjög venjulegur strákur og alls ekki geðveikur þó líklegast þunglyndur, átti velstæða foreldra, stundaði og æfði borðtennis og var mjög efnilegur í þeirri íþrótt. Ekkert bendir til þess að hann hafi eitthvað á móti stúlkum, þær stúlkur sem að þekktu hann báru honum vel söguna þó að hann hafi þó ekki verið neitt kvennagull, hann var hlédrægur. Það sem kannski greindi hann frá venjulegum unglingum var ást hans á skotvopnum, þá flestir strákar séu mjög áhugasamir um skotvopn. Hann safnaði byssum en þær voru eftirlíkingar, ekki alvöru skotvopn. Pabbi hans var þó jafn áhugasamur um skotvopn og safnaði þeim og hjálpaði skotfélagi bæjarins að halda dágóðu safni af skotvopnum. En það benti nákvæmlega ekkert til þess að hann myndi ganga af göflunum og hvað þá grípa til þessara vopna föður síns. Þetta er merkilegt tilfelli. Annars að einhverju aðeins skemmtilegra. Það var skóli síðasta laugardag og eftir hádegi þá fórum við í Staat Gallerie í Stuttgart til þess að teikna styttur. Úrvalið var svo sem ekkert mjög mikið en þar hefur maður styttur sem að geta hangið í sömu stellunginni endalaust og hendar því byrjanda eins og mér til teikna. Við vorum kannski að vissu leiti óheppinn því að þennan dag var menningarhelgi í Stuttgart og frítt inn og fólk streymdi því inn og var margt um manninn og það hafði auðvitað áhuga á því sem að við vorum að teikna þó ég verð að viðurkenna að þegar ég byrjaði að teikna þá gleymdi ég öllu sem að var í kringum mig. |
| | Sunnudagur, 15 Feb 2009 13:57 | Veturkonungur | | Veturkonungur er enn í heimsókn og ákvað núna fyrir helgi að gera allt fannhvítt. Hér frystir yfir nóttina og þegar ég fer í vinnuna er hægt að njóta snjósins en þegar ég fer í hádegismat er hann oftast farinn af flestum stöðum. Ég virðist hafa náð mér í einhverja hálfsbólgu sem er farin að leita upp í nefið. og ég verð því mjög fljótt þreyttur þessa dagana. Helgin hefur þess vegna farið mikið í það að sofa. |
| | Mánudagur, 09 Feb 2009 21:19 | Vonin deyr síðust | | Nokkuð strembin vika að baki þar sem að ég var á námskeiði í vinnunni og furðulega nokk, að læra á hugbúnaðinn sem ég er nú að hanna og forrita. Það er jú þannig að það eru yfir 20 manns sem að er að skrifa hugbúnaðinn og að vissu leiti þekkir hver og einn bara ákveðinn hluta hugbúnaðarins vel. Einnig var gott fyrir okkur sem að þróum hugbúnaðinn að sjá hvernig notendur myndu nota hugbúnaðinn. Þannig séð var það mjög fínt og það kom auðvitað í ljós að það er margt sem að við vildum gjarnan breyta. Þetta námskeið var seinni partinn, byrjaði um klukkan fjögur og var til átta. Eftir það tók þá við heimanámið fyrir myndasöguskólann sem að var svo á laugardaginn. Skólin á laugardaginn varð hin mesta skemmtun og eins og sést á verkum okkar nemendanna þá virðumst við öll hafa mjög gaman af þessu. Í þessu samhengi þá datt mér í hug að byrja að blogga um myndasögur á blog.is og stofnaði hóp áhugamanna um myndasögur á facebook, svo hver veit kannski skapast einhver umræða um myndasögur á íslensku og fólk á Íslandi verði meðvitað um myndasögur. Það er alltaf hægt að vona. |
|
Eldri fréttir
|
PhotoBlogg: (auf deutsch)
Teiknimynd vikunnar:
 Week: 19
Veðrið í Karlsruhe:
Núverandi lestning:
Ummæli dagsins: "How many Zen Masters does it take to change a light bulb?" - Answer tomorrow
|